Halló halló
Lýst vel á þessa síðu, held að hún eigi eftir að reynast mér mun betur en sú gamla. Annars er ég bara búin að fá 2 taugaáföll síðan á mánudaginn (já miðvikudagur í dag en svona er þetta) prófin alveg að fara með mig núna. Líka síðustu prófin og svona. Svo er kallinn bara farinn í partý, hvað er málið með það? Ekki verið að sýna manni prófasamstöðu NEI NEI og mér tilkynnt um partýið nákvæmlega 40 mínútum áður fyrir áætlaða brottför - já það má segja að ég sé svolítið pirruð og alheimur má sko alveg vita það. En ég ætla bara að fara snemma í rúmið til að reyna að komast hjá taugaáfalli nr 3 á morgun. Stefnan tekin á Eirberg í fyrramálið og orkuna má ekki vanta.
Jójó (eða var það Bridget?) á barmi taugaáfalls
Athugasemdir
Hæ,hæ mikið skil ég að þú skulir vera sár út í karlinn að geta ekki hjálpað þér þetta er jú ykkar framtíðsvo hann ætti að sjá sóma sinn í að vera heima og passa Kolbrá á meðan þú lærir. Skammastu þín Róbert og vertu tillitsamur við konuna þína og barnið. Tengdó/mamma
mamma/tengdó (IP-tala skráð) 25.4.2006 kl. 11:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.